Fjelag áhugamanna um Jóðl

Jóðlfjelagið

19.07.2007 13:28:31 / Eyrún

Kenndir menn með þunnt yfirvararskegg, eða kannksi fótboltaspælari

Føroya fyrsta videolag?
Kendir menn við tunnum yvirskeggum syngja falsett um stjørnudreymar. Ein varði í føroyskari tónleikasøgu, frá tíðini áðrenn alt gekk av skriðuni og ungir menn við tunnum yvirskeggum fóru at syngja um pedofilar, Miðflokkin og grátandi fjøll.

Síggj Stjørnuskotið hjá Plúmm her. Eg vil vera stjørnan!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 11:35:26 / Eyrún

..... ..... ..... ..... ..... .....

Jæja, þá er veðrið að komast í eðlilegra ástand. Það virðist vera að allur bílafloti okkar Íslendinga sé loks byrjaður að gera sitt gagn í ózoneyðingunni, Þar sem ég bý eru eimitt 4 bílar fyrir utan, svo ég er nú ekki alsaklaus, þó ég eigi AYGO.;)

En af mér að frétta er nú sossum ekkert merkilegt. Fór og heimsótti húsakynni Báru minnar um þarseinustu helgi og leist nú bara vel á. Ef þú lest þetta Bára forseti, þá var Lilja heiðursfélagi að vonast til að forseti Jambalayafélagsins myndi bjóða okkur félagsmönnum í vinabæ okkar, Akureyri, þar sem við viljum koma á sið kertafleytingar þar á bæ?:haha: Einnig vildi hún vita hvort þú myndir mæta á kertafleytinguna í ár hér í Reykjavík?8)

   Hún Sibba mín er komin til landsins og að sjálfsögðu skelltum við okkur á djammið að gömlum sið.:D Ég verð nú bara að lýsa ánægju minni með þetta Reykingabann. Fötin voru ekki gegnumsýrð af reykingalykt þegar maður kom heim.:) Samt er ýmis skrýtin lykt sem kemur í ljós á stöðunum þegar reykingalyktin er farin. Allt í einu finnur maður táfýlur, svitafýlur, andfýlur og allskonar líkamslykt:lol: – Kannski ráð að planta air wicki út um allt svo maður lykti þá bara eins og sítróna í staðinn en þetta er pæling..........8|:!:

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 14:22:01 / Eyrún

Sumar humar

Þá er sumarið loksins komið og lítur út fyrir að það eigi eftir að þjóta framhjá eins og volg vindkviða, enda mikið að gera bæði í starfi og leik, eins og gamla fólkið myndi orða það. Skúringavikan er kannski heldur löng, enda er verulega farið að hægjast á vinnugleðinni eftir 9 klst vinnudag, en hvað leggur maður ekki á sig fyrir nokkra bréfsnepla í viðbót, og vonandi nýja íbúð í lok sumars.Á döfinni hjá mér, fyrir ykkur sem eruð að njósna þá ætla ég loks að láta verða af því að ganga fimmvörðuhálsinn og það bara núna næstu helgi......En í lokin ætla ég að koma hér með ljóðstúf, sem ég hafði hugsað mér að lesa upp ef ég einhverntíman mun vera tilnefnd til að vera fjallkonan á 17. júní....

 

Útsala!

Ha er útsala!

Hvar er útsala

Áttu péning

 

Takk fyrir

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 21:24:26 / Eyrún

Kosningar

 

Eruði farin að fyllast valkvíða fyrir komandi kosningar...........Takiði prófið og vandamálið er úr sögunni...

http://www.b2.is/?sida=tengill&id=235346


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 23:31:56 / Eyrún

Eyrún berdreymna flytur ykkur fréttirnar

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú býrð yfir áberandi miklu aðdráttarafli í maí en þú virðist eiga það til að vanmeta útlit þitt. Næstu daga ættir þú reyndar að varast það að vera dómharður/dómhörð gagnvart þeim sem þú elskar sannarlega. Skipulag, áræðni og staðfesta er kjörorð vatnsberans þessa dagana. Hér er minnst á að þú vinnur of mikið og leikur þér of lítið. Njóttu stundarinnar með fólkinu þínu. 
 

Aldeilis skemmtileg stjörnuspáin mín í dag. Ég brá á það ráð að fara í klippingu í dag til þar sem stjörnuspáin mín segir að ég vanmeti útlit mitt. Ætli það sé annað hægt eftir öll þessi próf….maður er nottla búin að vera svo bissí að maður hefur vart haft tíma til að brúsa sig, hvað þá greiða sér eða flétta. :$ 

Seinustu nótt dreymdi mig draum, sá draumur var nú ekki merkilegur, mig dreymdi að ég hefði fengið fremur lélega einkunn í stærðfræði og var nú ekki á eitt sátt. Í dag fékk ég svo einkuninna og viti menn, hún var sú sama og í draumnum. Mig dreymdi líka aðra einkunn sem ég er ekki enn búin að fá, en ef hún verður sú sama og í draumnum held ég að ég opni stofu og leifi öðrum að njóta góðs af…………Eyrún berdreymna flytur ykkur fréttirnar…….:o  Þangað til næstEyrún Berdreymna8|   


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 19:00:09 / Eyrún

lalalalala LEY lalalalala LEY la LEY

Ég vaknaði hálf sofandi í morgun, og hélt að klukkan væri 6:15 og hljóp af stað til að vera ekki of sein í Boot Camp. Eitthvað fannst mér umferðin þung í morgunsárið. Í útvarpinu hljómaði þetta skondna lag sem búið er að ofsækja mig síðan. Fattaði svo þegar ég var komin á grensás að klukkan var í raun og veru 7:30, þannig að þessi morgunrúntur endaði bara heima uppi í rúmi......................


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 23:10:45 / Eyrún

Uppfærsla #1

Vá, finnst ég nýbúin að blogga, en tók svo eftir að það var víst í janúar. Það er ekkert smá hvað tíminn flýgur áfram.:lol: Fyrsta árið í háskólanum brátt að lokum komið, þó mér finnist að ég hafi nú bara byrjað í gær. Fór eimitt í fyrsta lokaprófið í dag, í hagfræðum, og það er ekki annað hægt að segja að það hafi verið frekar spes.8| Ef þið hafið einhverntíman sitið heila önn í áfanga, lesið vel fyrir próf og fundist þið svo vera í prófi úr öðrum áfanga þegar þig þreytið lokapróf, þá var þetta einhvernveginn svona hjá mér – nema nottla ég hafi eitthvað verið að miskilja, sem er alltaf séns.;)Allawegana.......eðlisfræðipróf beinnt eftir páska þannig að í bland við páskaeggið verður maður djúpt sokkinn í eðlisfræðibókina vonandi í seinasta sinn í þessu lífi.......:lol:Annars er ég byrjuð í Boot Camp og hef verið í stangri herþjálfun núna í 6 vikur sem ég mæli hiklaust með fyrir alla þá sem hafa gaman af............jæja, datt bara alveg út hvert ég ætlaði með þessa setningu. Allavegana hafa þessar 6 vikur einkennst af miklum harðsperrum – En ég er nú öll að koma til.:haha:  En frétti að atvinnurekendur væru byrjaðir að Googla það fólk sem það ræður í vinnu til sín, þannig að ef þú ert atvinnurekandi þá endilega hafðu samband – mig vantar vinnu í sumar.:haha: 

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 14:44:14 / Eyrún

Á rauðu ljósi

Það er alltaf gaman að hitta skrýtið fólk og sérstaklega við skrýtnar aðstæður.

Áðan fór ég til skattstjórans, vinar míns á Tryggvagötunni. Þegar ég var að fara sit ég í bílnum í mestu makindum þegar annar bíll staðnæmist á næstu akrein við hlið mér. Í þessum umtalaða bíl situr eldri maður 60+ á að giska. Hann rennir niður rúðunni farþegamegin og byrjar að flauta og gera allskyns hljóð til að ná sambandi við mig.8|

Ég verð að sjálfsögðu hissa enda ekki vön að eiga í samræðum við fólk í næstu bílum við mig. Þetta undarlega samtal var nokkurn vegin á þennan veg:

Kallinn: Hahahaha, þetta er eins og rasskeltur Yaris!!!

Ég: UHHH, hvað meinaru!!!

Kallinn: Hvurs tegundar er bíllinn þinn??

Ég: Aygo!!!

Kallinn: Hahahaha, ertu egóisti?

Ég: Nei, það held ég ekki!!

Kallinn: Minn er sko 150 hestöfl, þokkalegur kraftur sko!!!!

Ég: Já cool!!

Kallinn: Koma í spyrnu......hahahahahahahahaha

 

Svo kom grænt ljós.........

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 11:22:10 / Eyrún

Ajkito DOJO

Við Jón Valur skelltum okkur á Ajkito æfingu í gær með nágrönnum okkar.Þetta er eitthvað svona sjálfsvarnardæmi þar sem lítil kona gæti snúið niður 200kg mann án þess að vera á sterum. Æfingin byrjaði á að allir hneigðu sig, voða gaman. Við gerðum allskyns rúll um gólf og lærðum að detta án þess að meiða okkur. Svo var okkur að sjálfsögðu kennt nokkur brögð sem ég er nú ekki búin að ná alveg enþá, enda flókið mjög. Ég byrjaði að vera með einhverri stelpu í hóp, og það fyrsta sem hún segir er ,,Hæ, ég er gullfiskur" og ég náttla eins og auli vissi ekki alveg hvað hún var að meina og hélt að maður ætti að kalla sig einhverju svona nafni, ég meina hvað veit maður. Fattaði að hún var að meina að hún væri með gullfiskaminni rétt áður en ég var næstum búin að segja ,, Hæ, ég er Eyrún.....engisprettan........."

Já en svona er maður bara

Later


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 16:06:09 / Eyrún

Gleðilegt nýtt ár

Ég hef ævinlega verið mjög vinsæl meðal símasölufólks og tryggingasala, enda er hringt í mig all oft frá hinum ýmsu stofnunum.  Það sem af er þessu ári hefur mér verið boðin líftrygging (enda að verða 24 ára gömul), Ólafur frá KB banka  á Ísafirði hefur agalegar áhyggjur að það sé verið að svindla á mér með viðbótarlífeyrissparnaðinn og hefur sett sig í samband þrisvar það sem af er árinu.8| Ekki má svo gleyma gallup sem hringir minnst mánaðarlega og er ég farin að halda að ég sé að svara öllum könnunum sem gerðar eru.;) Að lokum má svo nefna hinar ýmsu hjálparstofnannir sem elta mig á röndum til að ná af mér ríkidæmi mínu gífurlega.:lol:

Já ég hef svosem við engann að sakast nema sjálfa mig þar sem ég hef þann löst að eiga í erfiðleikum með að neita.:S

 

Nú er maður svo  byrjaður í skólanum og eftir viku voum við búin að fara yfir 10 kafla í Hagfræði, enda dugar ekkert slór.8|

 

En annars leggst árið bara vel í mig og mína eins og 83% lesenda þessarar síðu.:haha:

 

Kv. Eyrún:haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 20:35:42 / Eyrún

Maður Veit Aldrei Fyrr En Allt Er..............................

Þessi bloggfærsla er skrifuð til minningar um frábærann félaga.

 

Það var sunnudagseftirmiðdag síðastliðinn að við vorum á leið í bæinn eftir friðsæla helgi í sveitinni. Þegar við nálguðumst Selfoss tókum við eftir að golfinn var farinn að spúa út úr sér hvítum reyk og farinn að hiksta meira en venjulega.:$ Eitthvað var greinilega að. Þar sem hann neytaði að keyra lengra, neyddumst við til að skilja hann eftir á Selfossi.:S Í dag kom svo í ljós að ekki yrði unnt að laga hann þar sem veikindinn væru alvalegri en búist var við í fyrstu.:cry:

Golfinn bíður nú jarðafarar sinnar á planinu á Essó á Selfossi og mun ekki koma til með að keyra oftar.

Blessuð sé minning hans.............

 

Ég veit að þetta er heldur snemmt og margir eiga eftir að taka andköf  og segja mig kalda og ótillitsama en

.................................

Ég hef þegar fjárfest í nýjum bíl, þar sem guli limmóinn hentar mér ekki. Ég verð þó á honum út vikuna þar sem ég fæ nýja bílinn ekki afhentan fyrr en á föstudaginn.

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.12.2006 10:55:46 / Eyrún

Myrkfælna afgreiðslustúlkann, fyrsti hluti

Fór í ræktina í gærmorgun. Þegar á staðinn var komið sá ég að ég hafði gleymt vatnsbrúsanum mínum, svo mér datt í hug að fjárfesta í nýjum. Það var hægara sagt en gert.:$ Ég sumsé fór í afgreiðsluna og var þar tjáð að brúsarnir væru geymdir á wellness cafe sem er b.t.w. bara hinu megin við afgreiðsluna.  Stúlkan tjáði mér svo eins og enginn væri morgundagurinn að þar sem það væri enn dimmt úti, þorði hún ekki að fara að sækja brúsa, hún hafði hugsað sér að bíða til allavegana 10, þegar það færi að birta til úti.8| Hahahahaha, hvernig væri það.:haha: Veit hvernig ég bregst við næst þegar ég vinn á kaffihúsinu

Kúnni: ,,ég ætla að fá einn kakó með rjóma”

Ég: ,,ég get gefið þér kakó, en því miður er rjóminn geymdur inn á lager og ég þori ekki þangað inn því það er svo dimmt úti – komdu aftur kl 10 ef þú vilt rjóma”8|

 

Ímyndið ykkur það leiðinlegasta sem þið hafið gert og setjið í 10 veldi. Já útkoman er það sem ég er að gera núna. Tölvunarfræðiáfangi til að læra að forrita er ekki að gera sig.:^) Ekki nóg með að þetta sé leiðinlegt, heldur sé ég ekki pointið með að kunna að breyta 4587 í 0101000101010110001000101110001001. ,,Hvað segiru, kostar þetta 4587 – já én ég kýs að fá verðið uppgefið á bitaformi, gætiru gert það vinan”:haha:

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 18:02:32 / Eyrún

1 done - 3 to go

Komst lifandi úr hindrunum seinasta prófs, en ætla nú ekki að tjá mig um frammistöðu mína á því að svo stöddu. Nú eru einungis þrjú próf eftir og er ég farin að iða af tilhlökkun.

Undanfarið hefur mikið á daga mína drifið. Ég er að verða bakveik af farangrinum sem ég drusla með út úr húsi á hverjum morgni og á tímabili var ég byrjuð að þurfa að fara tvær ferðir út í bíl með draslið. Auglýsi eftir einhverjum sem nennir að vera töskuberi fyrir mig á næstu önn, manneskjan þarf ekkert endilega að tala íslensku, en betra væri ef hún væri sterk. Mynd skilyrði. Góð laun fyrir réttu manneskjuna.

Takk fyrir og bless

Euro


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 22:27:40 / Eyrún

Allt að gerast:)

Október og Nóvember eru greinilega mánuðirnir í ár sem allt er að gerast í.8| Prófin eru núna í Nóvember og akkúrat í ár hefur mér aldrei verið boðið í fleiri veislur og skemmtanir. Tallinn um seinustu helgi, Töðugjöld í garðinum um næstu. Í dag hringdi svo fyrrum vinnuveitandi minn úr Tölvudreifingu til að boða mig á villibráðarhlaðborð í perlunni fyrir afganginn af peningunum í starfsmannasjóð.En það er bara gaman að þessu:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2006 10:45:42 / Eyrún

,,Borgin mín, Tallinn"

Kannski hugmynd að blogga eitthvað, fyrst maður er í svona leiðinlegum tíma.:$ Allavegana, ég kom heim frá Eistlandi í gær. Þetta var fín ferð í alla staði. Hér eru nokkrir hápunktar ferðarinnar:haha:

  • Fjögurra klukkustunda dýragarðsferð með leiðsögn er eitthvað sem ég mæli með fyrir alla. 8|
  • Og enn skemmtilegara er jafnlöng kynning í hinum geysiskemmtilega ,,botanical garden”, þar sem leiðsögumaðurinn kafar mjög djúpt í hverja einustu plöntu sem á vegi hans verður með einstökum áhuga og þar sem setningar á borð við ,,Kunniði Latínum” og ,,hafiði komið til Afríku” dúkka upp öðru hverju með skemmtilega undrandi hlátri leiðsögumannsins sem fannst það agalega gaman að við kynnum ekkert. Til að losna frá honum þurftum við svo að gefa það kurteislega í ljós að við hefðum ekki vott af áhuga á þessu öllu saman.;)
  • Lentum í miklum samskiptaörðuleikum við dónalegt þjónustufólk, sem hafði ekki tíma til að sinna okkur.:(
  • Við Lilja fundum hundaæfingargarð, leynigöng, hús sem við hyggjumst kaupa, skoðuðum þrjár kirkjur og gengum um gamla bæinn. Já og þetta gerðum við allt meðan hinir voru í Mollinu að versla.:haha:
  • Engin trúði því sem er hér að ofan.:$
  • Tókum upp nýjan þátt af borginni minni...........,,Borgin mín, Tallinn”. Þátturinn verður sýndur í Ríkissjónvarpinu í næstu viku.:haha:
  • Smakkað allskyns vondann mat eins og t.d. samloku með eggi sem var eins og jórturleður, soðnar rófur á hlaðborði, alskyns pizzur sem voru nú reyndar ágætar8|
  • Margt gerðist ,,Í ljósakiptunum"

 

Þetta var ágætisferð og eitthvað sem ég hefði nú ekki viljað missa af. Núna tekur mikið námsmaraþon við í fimm vikur – Prófin byrja víst eftir þrjár................:^)

 

Kveð þá í bili

Kv. Eyrún

 

P.S. Set inn Myndir frá Borginni minni Tallinn bráðlega


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Myndir
Austurríki
Börnin
Dagsetning
10. febrúar 2012
Klukkan
NIÐURTALNING
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1654 dögum